Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði
Bitruhálsi 1
110 Reykjavík
Sími:   569 2219
Fax:    569 2210
Tölvupóstfang: sam@sam.is
Veffang: www.sam.is

Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði, skammstafað SAM, eru hagsmunasamtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði. Tilgangur samtakanna er að sjá til þess að mjólkuriðnaðurinn í landinu verði rekinn á sem hagkvæmastan hátt með það að markmiði að gæta hagsmuna afurðastöðvanna inn á við sem út á við auk þess að gæta þess að framleiðendur og afurðastöðvar nýti sem best tiltæka markaði hverju sinni, innanlands sem utan.

Allar afurðatöðvar sem taka við mjólk beint frá framleiðendum eiga rétt á að gerast aðilar að samtökunum.

Á vegum SAM starfar Markaðsnefnd mjólkuriðnaðarins sem hefur með höndum markaðsfærslu á nýmjólk, léttmjólk, undanrennu, súrmjólk, rjóma, skyri og mysu.

SAM er aðili að alþjóðlegu mjólkuriðnaðarsamtökunum
International Dairy Federation (IDF)