Innvigtun mjólkursstöðvanna jókst um 6,6% milli áranna 2006 og 2007. Innvigtun árið 2007 var tæpar 125 milljónir lítra og var sú mesta frá upphafi.

Engin breyting varð á fjölda mjólkurstöðva á milli ára.  Meðalinnvigtun á mjólkurstöð jókst á milli ára og var 13,9 milljónir lítra árið 2007.

Meðalinnvigtun á framleiðanda jókst um 8,5% milli ára og var um 170 þúsund lítrar árið 2007.  Aukningin skýrist af fækkun framleiðenda, stækkun búa og aukinni nyt.

Innvigtun Mjólkursamsölunnar ehf og Mjólkursamlags KS á Sauðárkróki síðustu tvö ár er birt í eftirfarandi töflu.  Mjólkursamsalan ehf rekur sjö starfsstöðvar. 

Innvigtun mjólkursamlaganna 2006 til 2007:

  Innvigtuð mjólk í lítrum

Breyting milli ára %

Mjólkursamlag

2006

2007

Mjólkursamsalan ehf 106.306.374 113.015.682

6,3%

Mjólkursamlag KS 10.756.080 11.801.150

9,7%

Innvigtun alls 117.062.454 124.816.832

6,6%

Meðalinnvigtun á starfsstöð 13.006.939 13.868.537

6,6%

Meðalinnvigtun á framleiðanda 156.920 170.282

8,5%