Skýrsla 2007
Framleiðsla
Innlögð mjólk hjá aðildarfélögum SAM árið 2007 var um 124,8 milljónir lítra og jókst um 7,7 milljónir lítra frá fyrra ári.
Sala mjólkurvara
Upplýsingar um sölu ná eingöngu til aðildarfélaga Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði sf.
Sala mjólkurvara umreiknuð á sölu mjólkur miðað við próteinnotkun var 114,8 milljónir lítra, aukning frá árinu 2006 var um 1,5%.
Sala drykkjarmjólkur og sýrðra vara minnkaði milli ára en aukning varð í sölu annnarra vöruflokka. Mest var söluaukningin í viðbiti eða 6,7%, einnig var veruleg aukning í sölu osta.
Sala á fitugrunni árið 2007 var um 108,7 milljónir lítrar, sem er um 4,6% aukning frá fyrra ári.
Út- og innflutningur mjólkurvara
Útflutningur mjólkurafurða aðildarfélaga SAM árið 2007 nam 14,4 milljónum lítrum af mjólk á fitugrundvelli og jókst um 23% milli ára. Útflutningur á próteingrunni nam 3,9 milljónum lítrum sem var um 265% aukning milli ára. Meginhluti útflutningsins voru 667 tonn af smjöri og 200 tonn af undanrennudufti.
Heildarinnflutningur osta til Íslands árið 2007 var um 203 tonn, jókst um 30 tonn milli ára eða 17%. Innflutningur á ferskvörum var um 91 tonn, aðallega jógúrt, jókst um 29 tonn milli ára eða um 47% (Heimild: Hagstofa íslands).
Birgðir
Upplýsingar um birgðir ná eingöngu til aðildarfélaga Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði sf.
* Birgðir viðbits jukust um 58 tonn milli ára og voru 292 tonn í árslok 2007.
* Umreiknaðar fitubirgðir voru 15,8 milljónir lítra í lok ársins 2007 og hækkuðu um 2,9 milljónir milli ára eða 23%.
+ Umreiknaðar próteinbirgðir voru 22 milljónir lítra í lok ársins og jukust milli ára um 4,5 milljónir lítra eða 42%.