Á árinu 1994 voru 14 mjólkurstöðvar starfandi í landinu en voru 9 í lok árs 2007. Þetta er fækkun um 5 mjólkurstöðvar eða um 36%. Mjólkurframleiðendur voru 1388 árið 1994 en voru 733 árið 2007 sem er fækkun um 47%. Heildarinnvigtun mjólkur hjá mjólkurstöðvunum var um 102 milljónir lítra árið 1994 en tæpar 125 milljónir lítra árið 2007 sem er um 22% aukning.

Meðalinnvigtun á mjólkurstöð var um 7,3 milljónir lítra árið 1994 en um 13,9 milljónir lítra árið 2007 eða aukning um 90% að meðaltali á mjólkursamlag.


Rannsóknarstofa mjólkuriðnaðarins (RM) sameinaðist Samtökum afurðastöðva í mjólkuriðnaði 1. október 2006.  RM annast hvers konar mælingar, efnagreiningar, prófanir og rannsóknir á mjólkursýnum auk sýklaleitar og prófana á virkni fúkalyfja.