24. október 2006
Hækkun á lágmarksverði frá 1. október 2006 og staðfesting á efnainnihaldi viðmiðunarmjólkur fyrir verðlagsárið 2006/2007
Staðfesting á efnainnihaldi viðmiðunarmjólkurVerðlagsnefnd búvara hefur staðfest útreikning SAM á nýju efnainnihaldi viðmiðunarmjólkur (grundvallarmjólkur) sem kynnt var í frétt hér á vefnum 19. september s.l. og er það eftirfarandi fyrir
verðlagsárið 2006/2007:
Fita = 3,99 % og Prótein = 3,33 %.
Vægi efnaþátta í lágmarksverði mjólkur er óbreytt og er eftirfarandi:
Fita = 25 % og Prótein = 75 %.
Hækkun á lágmarksverði frá og með 1. október 2006Verðlagsnefnd búvara hefur ákveðið breytingu á lágmarksverði mjólkur frá framleiðendum. Frá og með 1. október 2006 hækkar lágmarksverð til framleiðenda úr 45,45 kr/lítra í
47,45 kr/lítra. Frá og með 1. október 2006 verður því verð á hverja fitu- og próteineiningu eftirfarandi:
(2,9731 * F%) + (10,6869 * P%) = kr. á lítra mjólk.
(2,9731 * fitueiningar í mánuðinum) + (10,6869 * próteineiningar í mánuðinum) = Samtals greitt fyrir mjólk innlagða í mánuðinum.
Til baka